Velta í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis nam alls tæplega 15,5 milljörðum króna á árinu 2014 og er það um 28% aukning frá árinu 2013.
Þetta er í samræmi við þær fréttir sem Klapptré flutti á seinni hluta síðasta árs. Af súlritinu hér að ofan má sjá að velta bransans hefur meira en þrefaldast á síðustu sex árum. Ástæðan er ekki síst mjög aukið umfang erlendra kvikmyndaverkefna sem hingað koma.
Þessar tölur koma frá SÍK sem aftur byggir á gögnum Hagstofu Íslands.