Viðhorf | Hverjir fá Eddu?

Kosningu Akademíumeðlima um Edduverðlaunin er nú lokið en úrslit verða kunngjörð í beinni útsendingu Stöðvar 2 (opin dagskrá, einnig á visir.is) á laugardagskvöld.

Vonarstræti og París norðursins fá báðar 12 tilnefningar til Edduverðlauna en líklegt má telja að sú fyrrnefnda verði sigurvegari kvöldsins. París á þó góða möguleika á að fá Eddu fyrir kvikmyndatöku (Magni Ágústsson), tónlist (Svavar Pétur Eysteinsson) og leikkonu og leikara í aukahlutverkum (Nanna Kristín Magnúsdóttir og Helgi Björnsson), hún væri vel að öllum þeim verðlaunum komin.

Samkvæmisleikurinn Edduspá lítur því svona út í ár (ekki allir flokkar upptaldir, upptalningin segir ekki endilega til um persónuleg viðhorf – frekar hvað ég tel að verði ofaná – þó að í sumum tilfellum fari það saman):

  • KvikmyndVonarstræti – Kvikmyndafélag Íslands
  • LeikstjórnBaldvin Z – Vonarstræti
  • HandritBaldvin Z og Birgir Örn Steinarsson – Vonarstræti
  • Leikari í aðalhlutverkiÞorsteinn Bachmann – Vonarstræti
  • Leikari í aukahlutverkiHelgi Björnsson–  París norðursins
  • Leikkona í aðalhlutverkiHera Hilmarsdóttir – Vonarstræti
  • Leikkona í aukahlutverkiNanna Kristín Magnúsdóttir – París norðursins
  • LeikmyndGunnar Pálsson – Vonarstræti
  • HljóðHuldar Freyr Arnarsson – Vonarstræti
  • KlippingSigurbjörg Jónsdóttir – Vonarstræti
  • TónlistÓlafur Arnalds – Vonarstræti
  • GerviKristín Júlla Kristjánsdóttir – Vonarstræti
  • KvikmyndatakaMagni Ágústsson – París norðursins
  • BúningarMargrét Einarsdóttir – Vonarstræti
  • Frétta- eða viðtalsþátturBrautryðjendur – RÚV
  • HeimildamyndSalóme – Skarkali
  • MenningarþátturVesturfarar – RÚV
  • StuttmyndHjónabandssæla – Dórundur og Sagafilm

 

Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Klapptrés.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR