Valgeir Vilhjálmsson, markaðsrannsóknastjóri hjá RÚV, hefur gert athugasemd við fréttaskýringu Kjarnans um minnkað sjónvarpsáhorf sem Klapptré sagði frá. Valgeir bendir á að sjónvarpsáhorf hafi alls ekki minnkað jafn mikið og fram kom í fréttaskýringu Kjarnans. Hann byggir þar á gögnum Capacent sem heldur utan um mælingar á fjölmiðlaneyslu hér á landi.
Kjarninn, sem byggði frétt sína einnig á gögnum Capacent, hélt því fram að þar sæist að áhorf á RÚV hefði minnkað um 29% á sex árum í aldursmenginu 12-80 ára.
Valgeir segir tölur Capacent sýna að áhorfið hafi aðeins minnkað um ca. 15% á þessum sex árum, sbr. grafið hér að neðan. Valgeir bendir einnig á að áhorf á sjónvarp sé að breytast mikið með nýrri tækni:
„Hliðrað áhorf er að aukast. Ætla má að um 10-15% af áhorfi á RÚV sé nú svokallað hliðrað áhorf (Tímaflakk, Sarpur, Vod) og nær 20% á Stöð 2 og Skjá einum. Þær tölur eru ekki inni í tölum á vef Capacent.“
Samkvæmt því hefur áhorf í raun ekki minnkað neitt að ráði, aðeins breyst að því leyti að fleira neyta sjónvarpsefnis utan hinnar hefðbundnu tímasettu dagskrár.