Vetrartökum á „Hrútum“ frestað vegna snjóleysis

Sigurður Sigurjónsson gáir til veðurs í Hrútum Gríms Hákonarsonar.
Sigurður Sigurjónsson gáir til veðurs í Hrútum Gríms Hákonarsonar.

Vetrartökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hefur verið frestað fram í janúar vegna snjóleysis í Bárðardal. Síðari hluti af tökum hefur staðið yfir nú í nóvember en síðustu tökudagarnir hafa nú verið færðir fram í janúar vegna einmuna veðurblíðu á Norðurlandi.

Í kvikmyndinni fara þeir Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson með hlutverk tveggja bræðra sem stunda búskap á samliggjandi jörðum en hafa ekki talast við í fjörtíu ár.

Að sögn framleiðenda krefst framvinda sögunnar þess að í Bárðardalnum sé alvöru vetur og snjór yfir öllu meðan á tökum stendur líkt og algengt er á þessum árstíma. Vetrartökur hófust þann 10. nóvember í frosthörkum við alhvíta jörð. Nú blasa hins vegar við græn tún og fuglasöngur. Samkvæmt veðurspám er milt veður í kortunum fyrir norðan og lítil von á snjónum sem nauðsynlegur er svo tökur geti haldið áfram.

Þessi skortur á vetrarveðri veldur framleiðslunni töluverðu raski en tökur hafa hins vegar gengið að óskum hingað til og telja aðstandendur myndarinnar ólíklegt að tafirnar muni hafa áhrif á útgáfu myndarinnar, en ætlunin er að frumsýna hana næsta haust.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR