„Jöklarinn“ frumsýnd í Bíó Paradís

Plakat kvikmyndarinnar Jöklarinn.
Plakat kvikmyndarinnar Jöklarinn.

Heimildakvikmynd Kára G. Schram Jöklarinn, brot úr sögu Þórðar Halldórssonar mesta lygara allra tíma – eða hvað? verður frumsýnd í Bíó Paradís 21. nóvember en almennar sýningar hefjast daginn eftir.

Myndin segir sögu Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará – eins frægasta ”Jöklara”, síns tíma – og þeirra ótrúlegu ævintýra sem hann rataði í á langri og strangri ævi.

Þórður var allt í senn: Sægarpur, refaskytta, listmálari, rithöfundur og skáld, mannvinur, náttúruverndarsinni og sagnaþulur. Umfram allt er hann þó þjóðsagnapersóna og þjóðhetja sem vert er að minnast. Hann hélt á lofti og kenndi okkur að meta náttúruna og þjóðararf fortíðar sem svo margir eru búnir að tapa eða gleyma. Hér var frjór andi á ferð sem miðlaði og gaf óspart af auðæfum sínum til að öðrum liði betur.

Hér má sjá nýja stiklu myndarinnar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR