París norðursins fer ágætlega af stað en myndin var frumsýnd á miðvikudag og almennar sýningar hófust á föstudag. Alls hafa 2.867 gestir séð myndina, en þar af komu 1.817 gestir nú um helgina. Myndin er í 2. sæti á aðsóknarlista SMÁÍS.
Vonarstræti er nú í 14. sæti á lista SMÁÍS eftir 17 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 173 manns s.l. viku, þar af 126 um síðustu helgi. Samtals hefur myndin fengið 46.102 gesti frá því sýningar hófust.
AÐSÓKN VIKUNA 1.-7. september 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
1 | París norðursins | 1.817 | 2.867 |
16 | Vonarstræti | 259 | 46.102 |