Vonarstræti er enn á topp tíu lista SMÁÍS eftir 15 vikur í sýningum og er í 9. sæti eftir helgina. Alls sáu myndina 373 manns s.l. viku, þar af 110 um síðustu helgi. Samtals hefur myndin fengið 45.654 gesti frá því sýningar hófust.
Nú styttist í að myndin færist úr 10. sætinu í það 9. yfir mest sóttu íslensku myndirnar frá 1995, en til þess þarf hún 632 gesti í viðbót.
AÐSÓKN VIKUNA 18.-24. ágúst 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
15 | Vonarstræti | 373 | 45.654 |