Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands klára önnina í Vatnagörðum 4

Kennsla samkvæmt stundaskrá hófst í nýja húsnæðinu á mánudag.

Forsaga málsins er sú að í mars varð rekstrarfélag Kvikmyndaskóla Íslands gjaldþrota. Í apríl keypti þekkingarfyrirtækið Rafmennt tæki skólans af þrotabúinu og bauð nemendum að klára önnina hjá sér. Rafmennt er rekið á vegum Rafiðnaðarsambands Íslands og hefur meðal annars um árabil verið með nám í kvikmyndagerð undir heitinu Kvikmyndatækni.

Starfsemin hefur verið rekin í húsnæði Stúdíó Sýrlands að Vatnagörðum 4 við Sundahöfn. Á sama stað var Sagafilm til húsa frá síðari hluta níunda áratugsins fram yfir aldamót.

Á vef Kvikmyndaskóla Íslands er að finna frétt um að Rafmennt hafi tekið við Kvikmyndaskólanum. Þar segir meðal annars:

Í gær, miðvikudaginn 16. apríl, komst Rafmennt að samkomulagi við þrotabú Kvikmyndaskóla Íslands um kaup á nafni, vörumerki, búnaði og öðrum verðmætum skólans. Þessi ákvörðun markar stórt skref í átt að því að tryggja áframhaldandi kvikmyndamenntun á Íslandi eftir gjaldþrot Kvikmyndaskóla Íslands í mars sl.

Og einnig:

Stjórn Rafmenntar lítur á þetta sem tækifæri til að efla kvikmyndanám á Íslandi. Með því að sameina nám Kvikmyndaskóla Íslands, fyrirliggjandi kvikmyndatækninám Rafmenntar og samstarf við aðra fræðsluaðila í geiranum telur stjórn Rafmenntar að grundvöllur sé fyrir öflugt, samhæft nám sem þjónar kvikmyndagreininni í framtíðinni.

Í dag barst Klapptré eftirfarandi fréttatilkynning:

Í lok síðustu viku flutti Kvikmyndaskólinn af Suðurlandsbraut 18 í Vatnagarða 4. Flutningum lauk síðastliðinn föstudag. Kennsla samkvæmt stundaskrá hófst í nýja húsnæðinu á mánudag.

Aðstaðan í Vatnagörðum er fyrsta flokks. Nemendur hafa aðgang að fjórum minni myndverum, einu stóru myndveri, sex hljóðverum auk alls þess nýjasta í tæknibúnaði fyrir kvikmyndagerð.

Í Kvikmyndaskólanum eru nú sextíu nemendur. Tuttugu og sjö þeirra munu útskrifast frá skólanum í vor.

Stefnt er að því að ný heimasíða skólans verði opnuð um miðjan maí og í framhaldinu opnað fyrir umsóknir um nám á skóaárinu 2025-2026. Áfram verður kennt eftir viðurkenndum námsbrautum Kvikmyndaskólans.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR