Tinna Ottesen framleiðir fyrir Stefnuljós.
Klipping: Janus Bragi Jakobsson & Kristján Loðmfjörð
Handrit: Janus Bragi Jakobsson, Tinna Ottesen & Kristján Loðmfjörð
Tónskáld: Loji Höskuldsson & Eygló Höskuldsdóttir Viborg
Hljóðhönnun: Sylvester Holm
Á Íslandi, í paradís amatörsins, voru alltaf til menn sem tóku upp viðburði í fjölskyldum eða bæjarfélagi – áður en nokkur vissi almennilega til hvers. Í dag eru það ekki lengur viðburðir sem eru skrásettir, heldur sjálfsmyndir sem eru skapaðar. Og allt þetta efni endar á YouTube. Myndin byggir á efni frá mönnum úr fjórum kynslóðum sem allir hafa deilt lífi sínu á YouTube. Fyrrverandi forstjórinn Guðfinnur hefur myndað fjölskyldu sína í áratugi. Leigubílstjórinn Kári heldur í óperudrauma sína með aríusöng í íbúðinni í Hafnarfirði. Einstæðingurinn Sævar opinberar sig í leit að alvöru tengingu við aðra. Og síðast en ekki síst áhrifavaldurinn Karl Emil sem týnist í leit að sjálfum sér. Leikstjórinn Janus Bragi fylgir þessum fjórum mönnum eftir og rýnir í hvernig þeir, með deilingu eigin myndefnis, spegla það sem skiptir mestu í lífinu.