Ástin sem eftir er (The Love That Remains) fangar á nærfærinn hátt eitt ár í lífi fjölskyldu, þegar foreldrarnir ganga í gegnum skilnað. Í gegnum fjórar árstíðir sýnir myndin bæði gáskafull og hjartnæm augnablik og hinn sætbeiska kjarna fölnaðrar ástar og sameiginlegra minninga.
Saga Garðarsdóttir, Sverrir Guðnason, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Þorgils Hlynsson og Grímur Hlynsson fara með helstu hlutverk.
Anton Máni Svansson er aðalframleiðandi myndarinnar fyrir hönd Still Vivid ásamt Katrin Pors fyrir hönd Snowglobe í Danmörku. Meðframleiðendur eru Mikkel Jersin, Eva Jakobsen, Nima Yousefi, Didar Domehri, Anthony Muir, Kristina Börjeson, Olivier Père og Rémi Burah.
Ásamt því að leikstýra og skrifa handrit annast Hlynur Pálmason kvikmyndatöku. Julius Krebs Damsbo klippir. Hljóðhönnun er í höndum Björns Viktorssonar. Frosti Friðriksson hannar leikmynd. Harry Hunt semur tónlist. Búningahönnun er í höndum Nina Grønlund og Katrine Tersgov sér um förðun.
Þetta er fjórða kvikmynd Hlyns í fullri lengd og sú þriðja í röð sem valin er til sýningar í Cannes. Myndin verður sýnd í Cannes Premiere flokknum sem hófst 2021. Sex aðrar kvikmyndir verða sýndar í flokknum.
Að neðan má sjá þær kvikmyndir íslenskra leikstjóra sem sýndar hafa verið á Cannes hátíðinni frá upphafi. Listinn inniheldur þær kvikmyndir (langar og stuttar) sem eru hluti af opinberu vali hátíðarinnar, sem og þær myndir sem valdar hafa verið á hliðardagskrár hátíðarinnar (Director’s Fortnight, Critics’ Week) sem haldnar eru samhliða hátíðinni og í nánu samstarfi við hana. Þetta er sjöunda árið í röð sem íslensk kvikmynd er valin á Cannes hátíðina (engin hátíð fór fram 2020 vegna heimsfaraldurs kórónuveiru).
1954: Hálendi Íslands / Magnús Jóhannsson (aðalkeppni)
1984: Atómstöðin / Þorsteinn Jónsson (Director’s Fortnight)
1992: Ingaló / Ásdís Thoroddsen (Critics’ Week)
1992: Ævintýri á okkar tímum / Inga Lísa Middleton (Stuttmyndaflokkur)
1993: Sódóma Reykjavík / Óskar Jónasson (Un Certain Regard)
2003: Stormviðri / Sólveig Anspach (Un Certain Regard)
2005: Voksne mennesker / Dagur Kári (Un Certain Regard)
2008: Smáfuglar / Rúnar Rúnarsson (Stuttmyndaflokkur)
2009: Anna / Rúnar Rúnarsson (Director’s Fortnight, stuttmynd)
2011: Eldfjall / Rúnar Rúnarsson (Director’s Fortnight)
2013: Hvalfjörður / Guðmundur Arnar Guðmundsson (Stuttmyndaflokkur)
2015: Hrútar / Grímur Hákonarson (Un Certain Regard)
2016: Sundáhrifin / Sólveig Anspach (Director’s Fortnight)
2018: Kona fer í stríð / Benedikt Erlingsson (Critics’ Week)
2019: Hvítur, hvítur dagur / Hlynur Pálmason (Critics’ Week)
2021: Dýrið / Valdimar Jóhannsson (Un Certain Regard)
2022: Volaða land / Hlynur Pálmason (Un Certain Regard)
2023: Fár / Gunnur Martinsdóttir Schlüter (Stuttmyndaflokkur)
2024: Ljósbrot / Rúnar Rúnarsson (Director’s Fortnight)
2025: Ástin sem eftir er / Hlynur Pálmason (Cannes Premiere)