Eva Georgs Ásudóttir ráðin dagskrárstjóri RÚV

Eva Georgs Ásudóttir hefur verið ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps hjá Ríkisútvarpinu.

Þetta kemur fram á vef RÚV og þar segir einnig:

Starfið var auglýst í mars og bárust alls 28 umsóknir en fimm drógu umsókn sína til baka. Intellecta annaðist ráðningarferlið sem var bæði vandað og ítarlegt.

Eva kemur til RÚV með tuttugu ára reynslu af störfum við fjölmiðla, þar af um fimmtán ár í stjórnunarhlutverkum. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í þróun og stefnumótun sjónvarpsefnis á Íslandi og býr yfir víðtækri reynslu af dagskrársetningu, framleiðslu, efnisinnkaupum og samstarfi við innlenda og erlenda framleiðendur.

Hún starfaði þar til nýverið sem sjónvarpsstjóri hjá Sýn þar sem hún leiddi 75 manna teymi og bar ábyrgð á rekstri, stefnumótun og dagskrá Stöðvar 2, Stöðvar 2+ og Stöðvar 2 Sport. Áður var hún meðal annars framleiðslustjóri innlendrar þáttagerðar hjá Stöð 2, framleiðslustjóri fréttastofu og veitti allri sjónvarpsframleiðslu 365 miðla forstöðu auk þess að vera yfirframleiðandi stórra verkefna á borð við Idol.

Eva er með menntun á sviði stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands ásamt meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík.

Dagskrárstjóri sjónvarps ber ábyrgð á mótun og innleiðingu dagskrárstefnu RÚV í samræmi við hlutverk miðilsins í almannaþágu. Hann leiðir dagskrársvið og tryggir faglega framleiðslu og innkaup á fjölbreyttu innlendu og erlendu efni auk þess að hafa yfirumsjón með dagskrá fyrir börn og ungmenni og íþróttaumfjöllun. Einnig felur starfið í sér samstarf við innlenda og erlenda efnisframleiðendur, mannauðsstjórnun og áætlanagerð.

Leitað var að öflugum leiðtoga með mikla þekkingu á dagskrárefni og sjónvarpsframleiðslu og innsýn í íslenskt fjölmiðlaumhverfi ásamt farsælli stjórnunarreynslu og getu til að móta og hrinda stefnu í framkvæmd.

Í ráðningarferlinu var staðfest að Eva uppfyllir vel þessar kröfur sem og aðrar sem gerðar voru til starfsins. Hún býr yfir mikilli faglegri og stjórnunarlegri reynslu úr fjölmiðlum, hefur skýra sýn á dagskrárstefnu og mikla hæfni í að leiða skapandi og öflugt starf með fagmennsku að leiðarljósi.

HEIMILDRÚV
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR