Böðvar Bjarki skrifar:
Hvers vegna er Kvikmyndaskóli Íslands, sem stofnaður var árið 1992 og hefur kennitölu frá árinu 2003, þegar fyrsta viðurkenning á starfseminni fékkst frá stjórnvöldum, allt í einu gjaldþrota?
Þetta gerist á sama tíma og gæði skólahalds hafa sjaldan verið meiri eða eftirspurn eftir náminu. Kvikmyndaskólinn hefur verið mjög hagkvæmur kostur fyrir ríkissjóð og mikilvægi skólans fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað er ekki véfengt. Kvikmyndaskólinn hefur verið meðlimur í alþjóðasamtökum kvikmyndaháskóla, Cilect, frá árinu 2012 og alþjóðlegi hluti námsins, innan Icelandic Film School, er án hliðstæðu í íslensku menntakerfi. Þangað streyma nemendur alls staðar að úr heiminum í nám. Í þeirri umræðu sem verið hefur undanfarna daga í fjölmiðlum þá hefur lítill sem enginn fókus verið á ástæðum þessarar stöðu.
Ástæður gjaldþrots
Það eru þrjár meginástæður fyrir gjaldþrotinu:
a. Í 28 mánuði hefur skólinn ekki fengið afgreidda viðurkenningu á starfsemina, hvorki frá Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, né Mennta- og barnamálaráðuneyti, þrátt fyrir linnulausar beiðnir stjórnenda og stjórnar skólans um afgreiðslu.
b. Við stofnun kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands árið 2021 féll niður námslánaréttur við Kvikmyndaskóla Íslands. Undanþága féll niður 1. apríl fyrir ári síðan. Það leiddi af sér fjöldabrottfall úr skólanum á haustmisseri 2024 og vormisseri 2025. Nemendum hefur fækkað um 50% með tilheyrandi tekjutapi skólans.
c. Ekki hefur tekist að ná samningum við Mennta- og barnamálaráðuneytið um útgreiðslu fjármuna til skólans á árinu 2025, þrátt fyrir að skólanum sé eyrnamerkt fé á fjárlögum. Engar greiðslur hafa því borist til skólans á þessu ári og afleiðingin er gjaldþrot.
Það hefur verið sameiginleg niðurstaða ráðherra og ráðuneyta á öllu þessu tímabili að Kvikmyndaskóla Íslands skuli gert ókleift að starfa. Með því að viðurkenna ekki skólann, taka námslánaréttinn af nemendum, og greiða síðan ekki til skólans af fjárlögum, þá hefur starfsemin verið keyrð í þrot. Þetta er gert án formlegrar og efnislegrar afgreiðslu umsókna og erinda Kvikmyndaskólans af hálfu ráðuneyta allan þennan tíma. Ástæður gjaldþrotsins eru því að öllu leyti afleiðingar af aðgerðum eða aðgerðarleysi ráðuneyta í að veita skólanum þjónustu sem ríkið hefur einkarétt á að veita, sem er viðurkenning náms innan skólakerfisins.
Spurningin sem fjölmiðlar mættu að spyrja og rannsaka: Af hverju hefur skólinn ekki fengið afgreiðslu stjórnvalda? Spurningin sem nemendur skólans núverandi og fyrrverandi þurfa að spyrja: Af hverju fást stjórnvöld ekki til þess að viðurkenna nám við Kvikmyndaskóla Íslands á réttu skólastigi?
Af hverju hafa stjórnvöld komið svona fram við skólann?
Engar formlegar skýringar liggja fyrir. Engar athugasemdir hafa verið gerðar við faglegt starf né heldur við meðhöndlun fjármuna. Skýringin virðist vera sú að stjórnvöld eru á móti uppbyggingu háskólastarfsemi utan núverandi háskóla.
Eftir að Kvikmyndaskólinn hafði staðist háskólaúttekt með glæsibrag, þótt sett væru ýmis skilyrði sem öll voru frekar auðleyst, þá breytti ráðuneytið niðurstöðum úttektar með fremur óskammfeilnum hætti og hafnaði því að afgreiða viðurkenningu skólans. Alveg sama þótt sent væri lögfræðiálit og málinu fylgt eftir mánuðum saman. Skólanum var lokað með þögn og aðgerðarleysi. Þetta á bæði við um núverandi ráðherra háskólamála Loga Einarsson og fyrrum ráðherra Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Varðandi það sem síðar hefur gerst að rafiðnaðarmenn hafa tekið yfir starfsemina og hyggjast starfrækja Kvikmyndaskóla Íslands til framtíðar, þá er alveg ljóst að þar er verið að tala um einhverja allt aðra starfsemi en verið hefur gangi síðustu áratugi. Full ástæða er til að þakka inngrip þeirra að borga laun og gera nemendum kleift að ljúka önninni. Hvað framtíðina varðar þá er greinilegt að skólanum er ætlað að verða einhverskonar iðnnám sem á að útskrifa tæknifólk sem þjónustar listamennina sem útskrifast frá Listaháskóla Íslands.
Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands í þeirri mynd sem hann hefur verið síðustu áratugi. Samhliða er eigendum hans refsað rækilega. Til einkaaðila og frumkvöðla á sviði skólamála eru skilaboðin skýr.
Icelandic Film School sem stofnaður var árið 2004 lifir enn. IFS starfar eftir sömu kennsluskrá og skipulagi og hinn gjaldþrota Kvikmyndaskóli Íslands. Þar verður haldið áfram að sinna listkennslu í kvikmyndagerð á háskólastigi.
Böðvar Bjarki Pétursson
formaður stjórnar Icelandic Film School
Meðfylgjandi er eftirfarandi pdf skjal sem hægt er að skoða með því að smella á forsíðuna: