KMÍ og SÍK efna til samtals um sjálfbæra kvikmyndagerð

Málþing í Bíó Paradís þriðjudag 16. janúar milli 15-17.

Í samræmi við kvikmyndastefnu 2020-2030 hefur Kvikmyndamiðstöð Íslands það að markmiði að stuðla að sjálfbærni í framleiðslu íslenskra kvikmynda.

Fyrir liggur að framleiðendur standa frammi fyrir auknum kröfum í þessum efnum, til að mynda um mælanleg markmið, vottun, þjálfun á mannskap og breytta nálgun í tækjakosti og aðföngum.

KMÍ og SÍK efna til samtals um hvernig best er að stuðla að þessari umbreytingu í greininni hér á landi.

Málþingið fer fram í Bíó Paradís, þriðjudaginn 16. janúar, klukkan 15-17.

Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

15:00 Inngangur
Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður KMÍ.

15:10 Erum við ekki græn nú þegar? Hvers vegna þarf að mæla og gera áætlanir?
Anna María Karlsdóttir, ráðgjafi.

15:30 Áskoranir og tækifæri
Fulltrúi stjórnar SÍK.

Umræður.

16:00 Kaffihlé

16:15 Green Producers Club
Mads Astrup Rönning kynnir starfsemi Green Producers Club. Green Producers Club hefur til þessa einkum starfað í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Nýlega hafa samtökin fengið fjármagn til að vinna að íslenskri og finnskri útgáfu af handbók og reiknivél til að áætla umhverfisáhrif einstakra verkefna.

Umræður.

17:00 Málþingi slitið

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR