Gísli Snær: Hlynur meðal fremstu leikstjóra Evrópu

„Við óskum Hlyni Pálmasyni – sem tryggir sér hér sess á meðal fremstu kvikmyndagerðarmanna Evrópu – og öllu því hæfileikaríka teymi sem að baki stendur Ástinni sem eftir er innilega til hamingju,“ segir Gísli Snær Erlingsson forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Ástin sem eftir er verður heimsfrumsýnd á Cannes hátíðinni í Cannes Premiere-flokknum, fyrst íslenskra mynda. Hátíðin fer fram í 78. sinn dagana 13. – 24. maí.

Gísli segir ennfremur: „Við erum afar stolt af þessum merka áfanga, sem rennir enn frekari stoðum undir sterka stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar á kvikmyndahátíðinni í Cannes, þar sem íslensk kvikmyndaverk hafa verið valin til sýninga á hverju ári sem hún hefur verið haldin síðan 2018.“

Metfjöldi kvikmynda sóttist eftir að verða sýndur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í ár, eða alls 2.909 verk. Hlynur er fyrstur íslenskra leikstjóra til að heimsfrumsýna kvikmynd í Cannes Premiere-flokknum, eins og áður sagði, og slæst þar í hóp virtra leikstjóra eins og Fatih Akin, Sebastán Lelio, Takeshi Kitano og Leos Carax, sem hafa einnig frumsýnt nýjustu kvikmyndir sínar þar.

„Við erum himinlifandi yfir því að Ástin sem eftir er sé hluti af aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes,“ segja framleiðendur myndarinnar. „Við getum ekki beðið eftir að deila þessari einlægu og oft bráðfyndnu kvikmynd með heiminum. Við erum sannfærð um að hún muni hreyfa við áhorfendum og koma þeim skemmtilega á óvart.”

Með helstu hlutverk fara Saga Garðarsdóttir, Sverrir Guðnason, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Þorgils Hlynsson, Grímur Hlynsson, Ingvar Sigurðsson og Anders Mossling.

Anton Máni Svansson, hjá STILL VIVID, framleiðir myndina ásamt ​​Katrin Pors hjá danska framleiðslufyrirtækinu Snowglobe. Meðframleiðendur eru Mikkel Jersin og Eva Jakobsen hjá Snowglobe (Danmörku), Nima Yousefi hjá HOBAB (Svíþjóð), Didar Domehri hjá Maneki Films (Frakklandi), Anthony Muir og Kristina Börjeson hjá Film I Väst (Svíþjóð), Olivier Pere og Remi Burah hjá Arte France Cinema (Frakklandi).

Meðal bakhjarla eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, Menningar- og viðskiptaráðuneyti Íslands, danski kvikmyndasjóðurinn, Nordisk Film & TV Fond, sænski kvikmyndasjóðurinn, Creative Europe MEDIA, Sveitarfélag Hornafjarðar, RÚV, Jour2Fête, ARTE, Max Dreifing SVT og DR.

New Europe Film Sales sér um alþjóðlega sölu líkt og fyrri myndir Hlyns – Volaða land (Un Certain Regard, Cannes), Hvítur, hvítur dagur (Critics’ Week, Cannes) og Vetrarbræður (aðalkeppni Locarno), auk nýjustu stuttmyndar hans Hreiður (Berlinale Special).

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR