Starfið felur í sér kennslu og stefnumótun um nám í kvikmyndalistadeild og er í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf eins og eru í gildi hverju sinni. Viðkomandi mun taka þátt í þróun náms á sviði sviðslista, tónlistar og kvikmyndalistar og vera þátttakandi í fræða- og fagsamfélagi Listaháskólans.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið frá janúar 2024.
Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir:
- Meistaragráðu í kvikmyndafræði eða tengdum greinum.
- Víðtækri reynslu af akademískum vinnubrögðum.
- Reynslu af kennslu á háskólastigi.
- Breiðri þekkingu á straumum og stefnum í kvikmyndalist.
- Góðri miðlunar-, samstarfs og samskiptahæfni.
- Skipulagshæfni og áreiðanleika.
- Góðri hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli.
Nánari upplýsingar má finna hér.