„Ég er þakklátur fyrir það traust sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur sýnt mér og ég hlakka til að takast á við þetta stóra verkefni,“ segir Gísli Snær Erlingsson, nýskipaður forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, í stuttu spjalli við Klapptré.
Aðspurður um hvernig hann liti á starfið og hver fyrstu skref yrðu, svaraði hann:
„Ég lít fyrst og fremst á þetta sem þjónustuhlutverk við kvikmyndagerðarfólk sem ávallt leggur allt í sölurnar til að gera verk sín að veruleika og þarf stuðning og skilning við sín verkefni. Ég tek við í apríl og þá verður mitt fyrsta verk að heyra í fólkinu í greininni, hlusta á sjónarmið og vega og meta þær áskoranir sem þarf að takast á við varðandi áframhaldandi uppbyggingu og vöxt Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.“
Gísli Snær tekur við starfinu í apríl næstkomandi. Fram að því hefur Sigurrós Hilmarsdóttur, framleiðslustjóra Kvikmyndamiðstöðvar, verið falið að gegna stöðu forstöðumanns.