Íslenskar kvikmyndir unnu til 45 verðlauna á alþjóðlegum vettvangi árið 2022. Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson hlaut flest þeirra, 16 talsins. Volaða land Hlyns Pálmasonar (dönsk/íslensk framleiðsla) hlaut 9 verðlaun. Stuttmyndin Hreiður eftir sama leikstjóra hlaut 7 verðlaun.
Hér að neðan er að finna samantekt á alþjóðlegum verðlaunum til íslenskra kvikmynda 2022.
Leiknar kvikmyndir:
Berdreymi
- Europa Cinemas Label verðlaunin sem besta evrópska myndin í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.
- Leikhópur myndarinnar vann aðalverðlaun á Actors Film Festival-hátíðinni í Kranj í Slóveníu.
- Leikararnir fengu viðurkenningu á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Guadalajara í Mexíkó, í Maguey-verðlaunaflokki hátíðarinnar.
- Gagnrýnendaverðlaun Biografilm-hátíðarinnar í Bologna á Ítalíu í flokknum Europe Beyond Borders.
- Guðmundur Arnar valinn besti leikstjórinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Transilvaníu.
- Alþjóðasamtök kvikmyndagagnrýnenda, FIPRESCI, völdu Berdreymi sem bestu kvikmyndina í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar Off Camera í Póllandi.
- Blær Hinriksson valinn besti leikarinn á Matera Film Festival á Ítalíu.
- Sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Taipei í Taiwan.
- Áhorfendaverðlaun og verðlaun ungmennadómnefndar á Burgas Film Festival í Búlgaríu.
- Aðalverðlaun La Roche-sur-Yon hátíðarinnar í Frakklandi.
- Viðurkenning ungmennadómnefndar (Future Generation’ prize) á Sottodiciotto Film Festival á Ítalíu.
- Áhorfendaverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Ulaanbaatar Mongólíu (UBIFF).
- Verðlaun dómnefndar ungmenna á kvikmyndahátíðinni í Valladolid á Spáni.
- Fischer áhorfendaverðlaunin í flokknum Open Horizons á Thessaloniki Film Festival í Grikklandi.
- Besta handritið á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Stokkhólmi.
Volaða land
- Baltic Film Prize verðlaunin fyrir bestu norrænu kvikmyndina á Norrænu kvikmyndahátíðinni í Lübeck Þýskalandi.
- Besta myndin á Riga International Film Festival í Lettlandi.
- Ingvar E. Sigurðsson besti leikarinn á Festival de Cine í Gáldar á Spáni.
- Sérstök viðurkenning dómnefndar BFI London Film Festival.
- Aðalverðlaun Alexandre Trauner Art/Film Festival í Szolnok í Ungverjalandi fyrir leikmyndahönnun Frosta Friðrikssonar.
- Golden Hugo, aðalverðlaun Chicago hátíðarinnar.
- Zabaltegi-Tabakalera verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á Spáni.
- Áhorfendaverðlaun á Scanorama European Film Forum í Litháen.
Á ferð með mömmu
- Aðalverðlaun Tallinn Black Nights hátíðarinnar og besta tónlist á sömu hátíð.
Dýrið
- Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022.
Heimildamyndir:
Aftur heim?
- Besta heimildamyndin á Hollywood IWAA hátíðinni. Dögg Mósesdóttir var einnig valin besti leikstjórinn í flokki heimildamynda.
Hálfur Álfur
- Verðlaun fyrir kvikmyndatöku á German International Ethnographic FilmFestival, GIEFF, Göttingen.
Hækkum rána
- ECFA verðlaunin fyrir bestu evrópsku heimildamyndina fyrir börn í Berlín.
Stuttmyndir:
Hreiður
- Besta alþjóðlega stuttmyndin og Hlynur Pálmason valin besti leikstjórinn á 40. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Sulmona á Ítalíu.
- Aðalverðlaunin á stuttmyndahátíðinni í Odense í Danmörku.
- Aðalverðlaunin á Curtas Vila do Conde hátíðinni í Portúgal.
- Besta stuttmyndin á UK Film Festival í London Englandi.
- Verðlaun dómnefndar ungmenna á Festival Tous Courts hátíðinni í Frakklandi.
- Peer Award á International Short Film Festival í Leuven í Belgíu.
Eggið
- Best Genre Film í flokknum Generation XYZ á kvikmyndahátíðinni í Tampere, Finnlandi.
Á yfirborðinu
- Sérstök viðurkenning dómnefndar á stuttmyndahátíðinni í Clermont-Ferrand í Frakklandi.
Leikið sjónvarpsefni:
Verbúðin
- Sérstök viðurkenning í flokki leikins sjónvarpsefnis á Prix Europa verðlaunahátíðinni.
- Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) stendur fyrir verðlaununum.
Trom
- Tvenn verðlaun á sjónvarpsverðlaunahátíðinni í Monte-Carlo.