Berdreymi fékk 899 gesti í vikunni og nemur heildarfjöldi gesta nú alls 6,268. Myndin er áfram í þriðja sæti eftir fjórðu helgi.
Allra síðustu veiðiferðina sáu 392 gestir í vikunni. Heildaraðsókn nemur nú 23,434 gestum. Myndin er áfram í 6. sæti eftir níundu sýningarhelgi.
Skjálfti fékk 76 gesti fimmtu sýningarvikuna. Heildaraðsókn nemur 3,905 gestum. Myndin er áfram í fjórtánda sæti eftir sjöundu sýningarhelgi.
Aðsókn á íslenskar myndir 9.-15. maí 2022
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
4 | Berdreymi | 899 (1,307) | 6,268 (5,369) |
9 | Allra síðasta veiðiferðin | 392 (665) | 23,434 (23,042) |
7 | Skjálfti | 76 (115) | 3,905 (3,829) |