Myndirnar á Skjaldborg 2022

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði, dagana 3. – 6. júní. Hátíðin fór síðast fram í sínu hefðbundna formi 2019.

Í ár verður sérstök áhersla lögð á notkun sögulegs efnis í heimildamyndagerð. Auk heimildamynda og kynningu á verkum í vinnslu verður Kvikmyndasafn Íslands með sér dagskrárlið, Ari Eldjárn fylgir áhorfendum gegnum myndefni frá fjölskyldu sinni og Björg Sveinbjörnsdóttir frá Hversdagssafninu á Ísafirði gefur áhorfendum innsýn í hljóðin úr eldhúsi ömmu sinnar.

Þá verður heimamyndadagur hluti af hátíðinni og einn dagskrárliðurinn er því heimamyndabingó sem spilað er upp úr heimagerðu myndefni Vestfirðinga.

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Magnus Gertten en hann er margverðlaunaður heimildamyndagerðarmaður frá Svíþjóð. Hann hlaut Teddy verðlaunin á Berlinale fyrr á þessu ári fyrir heimildamyndina Nelly & Nadine sem verður jafnframt opnunarmynd Skjaldborgar í ár.

13 myndir verða sýndar á hátíðinni auk þess sem verk í vinnslu verða kynnt. Tíu þeirra verða frumsýndar á Skjaldborg en við þær sérstöku aðstæður sem sköpuðust í samfélaginu á undanförnum árum var Skjaldborg aflýst árið 2021 og því hefur þremur myndum frá því ári verið boðin þátttaka í hátíðinni. Myndirnar 13 eru:

Alexander
Leikstjóri: Óli Hjörtur Ólafsson
Framleiðandi: Óli Hjörtur Ólafsson og Arnór Gíslason

Árni
Leikstjóri: Allan Sigurðsson og Viktoría Hermannsdóttir
Framleiðandi: Allan Sigurðsson, Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm Sólmundarson

Börn kvótakerfisins
Leikstjóri: Björg Sveinbjörnsdóttir
Framleiðandi: Björg Sveinbjörnsdóttir

Díflissudúfa
Leikstjóri: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
Framleiðandi: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko

Hvunndagshetjur
Leikstjóri: Magnea Björk Valdimarsdóttir
Framleiðandi: Júlíus Kemp, María Lea Ævarsdóttir og Magnea Björk Valdimarsdóttir, Kvikmyndafélag Íslands

Hækkum rána
Leikstjóri: Guðjón Ragnarsson
Framleiðandi: Margrét Jónasdóttir, Sagafilm

Í öruggum höndum
Leikstjóri: Hera Fjord
Framleiðandi: Hera Fjord

Moses í mynd
Leikstjóri: Helgi Jóhannsson
Framleiðandi: Ólafur Páll Torfason og Helgi Jóhannsson

Sundlaugasögur
Leikstjóri: Jón Karl Helgason
Framleiðandi: Jón Karl Helgason, JHK Films

Thinking about the Weather
Leikstjóri: Garðar Þór Þorkelsson
Framleiðandi: Jamie Mcdonald

Wandering Star
Leikstjóri: Ari Allansson
Framleiðandi: Ari Allansson

Vatnavísundurinn
Leikstjóri: Kamilla Gylfadóttir
Framleiðandi: Syros International Film Festival

Tídægra
Leikstjóri: Anní Ólafsdóttir og Andri Snær Magnason
Framleiðandi: Anní Ólafsdóttir og Andri Snær Magnason, Elsku Rut og Lokaútgáfan

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR