Útgáfu bókarinnar Iceland on Screen eftir Wendy Mitchell, verður fagnað í Bíó Paradís, föstudaginn 25. mars klukkan 15.00, með dagskrá um tengsl kvikmynda og sjónvarpsefnis við ferðamennsku á Íslandi.
Wendy Mitchell er fréttaritari Screen International á Norðurlöndum og hefur starfað sem ritstjóri og blaðamaður um langt skeið, fyrir miðla eins og Entertainment Weekly, indieWire og Rolling Stone. Iceland on Screen er hennar þriðja bók.
DAGSKRÁ
- Wendy Mitchell segir frá bókinni Iceland on Screen.
- Þorleifur Þór Jónsson, verkefnastjóri útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, ræðir hvernig kvikmyndir eru nýttar í kynningum gagnvart ferðaheildsölum.
- Katarzyna Maria Dygul, verkefnastjóri markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, fjallar um mælingar á áhrifum kvikmynda og sjónvarpsefnis á ákvörðun ferðamanna sem koma til landsins.
- Guðrún Þórisdóttir, markaðsstjóri hjá Gray Line, segir frá skipulögðum ferðum tengdum kvikmyndum og sjónvarpsefni.
- Sigríður Rósa Bjarnadóttir, formaður Félags kvikmyndagerðamanna, talar um gildi framangreindra verkefna fyrir hinn almenna kvikmyndagerðamann.
Boðið verður upp á léttar veitingar og gestir fá eintak af bókinni Iceland on Screen.
Kvikmyndamiðstöð Íslands, Íslandsstofa og Félag kvikmyndagerðarmanna standa fyrir dagskránni.