spot_img

SKJÁLFTI fær góðar viðtökur í Tallinn

Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur var frumsýnd á Tallinn Black Nights Film Festival í Eistlandi um helgina. Fyrstu umsagnir gagnrýnenda eru jákvæðar.

Vísir greinir frá:

Gagnrýnandinn Neil Baker hrósar handritinu í hástert, ásamt frammistöðu Anítu Briem og kvikmyndatöku Tómasar Arnar Tómassonar. Í gagnrýni Rob Aldam segir hann myndina virkilega kraftmikla og Anítu Briem er einnig hrósað sérstaklega. Í báðum tilvikum fara gagnrýnendur virkilega fögrum orðum um uppbyggingu handritins.

Byggð á skáldsögu Auðar Jónsdóttur
Tinna Hrafnsdóttir skrifar bæði handritið og leikstýrir, en kvikmyndin er byggð á skáldsögunni Stóra skjálfta eftir Auði Jónsdóttur, sem kom út árið 2015. Myndin segir frá Sögu sem vaknar eftir heiftarlegt flogakast á Klambratúni og man lítið sem ekkert eftir því hvað gerðist í aðdraganda þess.

Fréttastofa sló á þráðinn til Tallinn, en þar er Tinna stödd ásamt hópi fólks sem stóð að myndinni: „Við hefðum viljað vera fleiri en í ljósi aðstæðna og hertra samkomutakmarkana þá fór aðeins hluti af hópnum,“ segir Tinna.

„Maður veit aldrei við hverju er að búast“
Að sögn Tinnu kom fólk að tali við hana eftir myndina og virtist snortið: „Þetta er saga sem margir geta speglað sig í og virðist snerta ákveðna strengi í fólki,“ segir Tinna og heldur áfram: „Fyrir mig sem sögumann er það eitt það besta sem gerist. Þar liggur tilgangurinn,“ segir hún og bætir við að fólk hafi deilt fjölskyldusögum og sagt að persónulegar minningar hafi rifjast upp í kjölfar áhorfsins.

„Maður veit aldrei hvað er í vændum, en að sjálfsögðu vonaðist ég eftir jákvæðum viðbrögðum. Ég og allt mitt teymi lögðum mikinn metnað í myndina, en maður veit að sjálfsögðu aldrei við hverju er að búast,“ segir Tinna himinlifandi og hrósar teyminu sem stóð að myndinni í hástert.

Gríðarlega þakklát
„Ég er þakklát Auði Jónsdóttur fyrir að hafa treyst mér fyrir þessari sögu. Treyst mér fyrir því að segja þessa sögu með mínu nefi,“ segir Tinna og bætir við að þetta hafi verið mikil áskorun sem hún vildi að sjálfsögðu standa undir.

„Svo er ég alveg ofboðslega stolt og ánægð með mitt samstarf við Anítu Briem. Hún algjörlega ber þessa mynd á sínum herðum með glæsibrag, af þvílíkri fagmennsku og einlægni að það er algjörlega magnað. Hún stendur sig frábærlega í þessari mynd,“ segir Tinna.

Til stendur að sýna myndina hér á landi í janúar næstkomandi, en stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.

 

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR