JARÐARFÖRIN MÍN tilnefnd til þýskra verðlauna

Þáttaröðin Jarðarförin mín er tilnefnd í flokki dramaþátta Berlin TV Series Festival sem fram fer í Þýskalandi 23.-27.september í fjórða sinn.

Laddi fer með aðalhlutverkið í þáttunum. Kristófer Dignus leikstýrði en þáttaröðin var frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium í upphafi ársins. Auk Kristófers skrifa Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Jón Gunnar Geirdal, Ragnar Eyþórsson, Sóli Hólm og Baldvin Z handrit þáttanna, sem framleiddir eru af Glassriver.

Jarðarförin mín er ljúfsár en alvörugefin sex þátta sería um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi. Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin jarðarför og vera sjálfur viðstaddur. Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR