Eftir sjö helgar á toppnum hefur Amma Hófí eftirlátið Tenet eftir Christopher Nolan fyrsta sætið.
575 sáu Ömmu Hófí í liðinni viku en alls hefur myndin fengið 20,584 gesti eftir áttundu sýningarhelgi.
296 sáu Síðustu veiðiferðina í vikunni. Eftir 26. sýningarhelgi (þar af tuttugu helgar í sýningum) nemur heildarfjöldi gesta 34,999 manns.
ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.
Aðsókn á íslenskar myndir 24.-30. ágúst 2020
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
8 | Amma Hófí | 575 | 20,584 (20,009) |
26 | Síðasta veiðiferðin | 296 | 34,999 (34,703) |