[Stikla] ÞRIÐJI PÓLLINN, frumsýnd 27. mars

Stikla heimildamyndarinnar Þriðji póllinn eftir Andra Snæ Magnason og Anní Ólafsdóttur hefur verið birt á Vísi. Sýningar á myndinni hefjast 27. mars í Senubíóunum.

Á Vísi.is segir um myndina:

Þriðji póllinn er heimildarmynd í fullri lengd sem fjallar um geðhvörf með söngvum og fílum. Söguhetjur eru Högni Egilsson, tónlistarmaður, og Anna Tara Edwards, íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga.

Anna Tara veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. Hún lifði í skugga veikindanna um árabil, en þegar Högni Egilsson steig fram með sína sögu ákvað hún að feta sömu leið, skora skömmina á hólm og efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals. Hún fékk Högna til að spila á tónleikunum og fyrir ágóðann var opnuð hjálparlína fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum í Nepal.

Fá að heyra þeirra hlið

Þriðji póllinn fylgir Önnu Töru og Högna um framandi slóðir í aðdraganda tónleikanna.

Í kvikmyndinni fá áhorfendur að heyra þeirra hliðar á sjúkdómnum; um hæðirnar og hinar miklu lægðir og leitina að jafnvægi. Þriðji Póllinn er ekki hefðbundin fræðslumynd heldur innsýn í hugsun og veruleika tveggja einstaklinga sem hafa glímt við sama sjúkdóm. Þetta er ferðasaga, mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm, og vera aðstandandi. Sögur þeirra lýsa bæði alvarleika sjúkdómsins, en einnig sigrum, og gefa umfram allt von.

Þetta er fyrsta mynd Anní Ólafsdóttur í fullri lengd en Andri Snær Magnason hefur áður leikstýrt Draumalandinu ásamt Þorfinni Guðnasyni, sem var aðsóknarmesta heimildarmynd Íslandssögunnar.

Framleiðendur myndarinnar eru:  Andri Snær Magnason, Hlín Jóhannesdóttir, Halldóra Þorláksdóttir og Sigurður Gísli Pálmason. Samstarf hefur verið við Geðhjálp, Landlæknisembættið og Píeta, samtök gegn sjálfsvígum. Sena dreifir myndinni en fyrirhuguð frumsýning í kvikmyndahúsum er 27. mars. Hátíðarfrumsýning verður þann 24. mars í Háskólabíó.

Hér að neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni.

Sjá nánar hér: visir.is

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR