[Stikla] „Taka 5“ eftir Magnús Jónsson frumsýnd á Stockfish

Leikarahópurinn.

Bíómyndin Taka 5 eftir Magnús Jónsson verður frumsýnd á Stockfish hátíðinni sem hefst í lok febrúar. Stikla myndarinnar hefur verið opinberuð og má skoða hér.

Myndin hefur verið nokkuð lengi í vinnslu, enda gerð að mestu án styrkja. Upptökur fóru fram sumarið 2016 í Fljótshlíð, Rangárvallasýslu á 9 dögum.

Þetta er er svört gamanmynd um Ragnar Árnason, ungan bónda sem hefur alist upp í einangrun á afskekktum bæ úti á landi. Hans eini félagsskapur er sjónvarpið og persónur kvikmyndanna. Æðsti draumur Ragnars er að vera leikari og að fá að leika í alvöru bíómynd. Dag einn ákveður hann gera eitthvað í málunum. Hann rænir fimm listamönnum úr borginni, leikstjóra, leikkonu, myndlistarmanni, tónskáldi og rithöfundi og neyðir þau til að búa til bíómynd með sér upp úr gamalli sögu sem hann fann í bók.

Hilmir Jensson, Þóra Karítas Árnadóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Halldór Gylfason, Ólafur Ásgeirsson, Kári Hjaltason, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Magnús Jónsson fara með hlutverk myndarinnar. Magnús semur handrit og leikstýrir, Hrund Atladóttir stjórnar kvikmyndatöku, Árni Þorbjörn Gústafsson sér um hljóðhönnun en hljóðmenn auk hans voru Ari Rannveigarson og Kári Haraldsson, sem einnig sá um almenna aðstoð.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR