Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstjóri og handritshöfundur mun halda námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands í haust þar sem hún kennir hvernig aðlaga má skáldsögur að kvikmyndaforminu.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið í eftirfarandi:
• Kvikmyndaaðlögun sem listform; áhugaverð myndbrot sýnd og rædd.
• Grunntækni þess að aðlaga bók að mynd, sem og sértækari nálgunarmöguleika.
• Undirstöðuatriði handritaskrifa almennt, og kennsla á ritvinnsluforritið Fade In sem og sambærileg forrit.
• Hugað að handriti hvers og eins, er þátttakendur byrja að vinna sjálfstætt að sinni aðlögun.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á skáldskap, kvikmyndum og ekki síst hvernig heimur bókmennta og kvikmynda mætast. Námskeiðið hentar vel byrjendum í handritagerð sem og þeim sem hafa reynslu eða bakgrunn á því sviði.
Sjá nánar hér: Skáldsögur á hvíta tjaldinu – listin að aðlaga skáldsögur að kvikmyndaforminu – Endurmenntun