Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson með um sextán þúsund gesti eftir elleftu sýningarhelgi.
Kona fer í stríð Benedikts Erlingssonar og Andið eðlilega Ísoldar Uggadóttur eru enn í sýningum, auk Adrift eftir Baltasar Kormák.
Alls hafa nú 15,968 séð Kona fer í stríð eftir 11. sýningarhelgi, 12,100 hafa séð Adrift eftir átta vikur og 6,673 Andið eðlilega eftir 22 vikur.
Aðsókn á íslenskar myndir 30. júlí til 5. ágúst 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
11 | Kona fer í stríð | - | 15,968 | - |
8 | Adrift | - | 12,100 | - |
22 | Andið eðlilega | - | 6,673 | - |