[Stikla, plakat] „Lof mér að falla“ frumsýnd 7. september

Ný stikla kvikmyndarinnar Lof mér að falla eftir Baldvin Z er komin út ásamt plakati myndarinnar. Hvorutveggja má skoða hér.

Myndin segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Leikstjóri myndarinnar er Baldvin Z en hann skrifar einnig handrit ásamt Birgi Erni Steinarssyni. Þeir skrifuðu einnig saman handrit myndarinnar Vonarstrætis, sem Baldvin Z leikstýrði, sem sópaði til sín tólf verðlaunum á Edduverðlaunahátíðinni árið 2015 en tæplega 48 þúsund manns sáu þá mynd í kvikmyndahúsum hér á landi.

Með aðalhlutverk fara Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Einnig koma fram Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.

Framleiðendur myndarinnar eru Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson en meðframleiðendur eru Markus Selin og Jukka Helle.

Lof mér að falla verður frumsýnd hér á landi 7. september næstkomandi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR