Prentútgáfa Lands & sona, málgagns kvikmyndagerðarmanna, sem gefið var út á árunum 1995-2008, er komin á vef Landsbókasafnsins, timarit.is, í heild sinni. Alls komu út 45 hefti.
Þarna er að finna hverskyns efni um íslenska kvikmyndagerð, viðtöl, fréttir, umfjallanir, hugmyndaumræðu og margt fleira. Smelltu hér til að skoða Land & syni á timarit.is (í dálkinum vinstra megin á timarit.is er hægt að velja árganga, tölublöð og blaðsíður).
Vefhluti miðilsins, logs.is, fór í loftið 2003 en hætti starfsemi 2011. Hægt er að nálgast afrit á Vefsafni Landsbókasafnsins. Smelltu hér til að skoða logs.is.
Fastan aðgang að bæði blaði og vef má finna í borðanum efst undir „Land & synir“.