„Lói“ fær verðlaun í Kristiansand og góða aðsókn víða um heim

Haukur Sigurjónsson og Gunnar Karlsson hjá GunHil, framleiðslufyrirtæki Lóa, í Kristiansand í dag.

Lói – þú flýgur aldrei einn í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar hlaut aðalverðlaun Alþjóðlegu barnamyndahátíðarinnar í Kristiansand í Noregi í dag. Þetta eru fyrstu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar en hún tekur þátt í ýmsum hátíðum þessar vikurnar. Á undanförnum vikum hefur myndin verið tekin til sýninga í ýmsum löndum og er nú á topp tíu listum í Rússlandi, Mexíkó og Argentínu og hefur halað inn yfir 200 milljónir króna. Nú um helgina bætast fleiri lönd við.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR