Lói – þú flýgur aldrei einn í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar hlaut aðalverðlaun Alþjóðlegu barnamyndahátíðarinnar í Kristiansand í Noregi í dag. Þetta eru fyrstu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar en hún tekur þátt í ýmsum hátíðum þessar vikurnar. Á undanförnum vikum hefur myndin verið tekin til sýninga í ýmsum löndum og er nú á topp tíu listum í Rússlandi, Mexíkó og Argentínu og hefur halað inn yfir 200 milljónir króna. Nú um helgina bætast fleiri lönd við.