Víti í Vestmannaeyjum eftir Braga Þór Hinriksson er nú í þriðja sæti aðsóknarlistans eftir fjórðu sýningarhelgi og er heildarfjöldi áhorfenda kominn að 28 þúsund manns.
Í vikunni komu 2,612 gestir á Víti í Vestmannaeyjum og alls hafa því 27,978 séð hana eftir fjórðu sýningarhelgi.
Andið eðlilega er í 12. sæti eftir 6. sýningarhelgi. 334 sáu myndina í vikunni. Alls hafa 5,718 gestir séð hana. (Minnt er á að Klapptré raðar myndum eftir vikuaðsókn en FRÍSK raðar á listann eftir helgarinnkomu, sem skýrir hversvegna Andið eðlilega er hér ofar en Lói).
Lói er í níunda sæti eftir 11. sýningarhelgi en hún fékk 286 gesti í vikunni. Alls hafa 22,497 séð myndina hingað til.
Svanurinn er í 25. sæti eftir 15. sýningarhelgi. Alls hafa 4,300 séð hana.
Aðsókn á íslenskar myndir 9.-15. apríl 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
4 | Víti í Vestmannaeyjum | 2,612 | 27,978 | 25,366 |
6 | Andið eðlilega | 334 | 5,718 | 5,384 |
11 | Lói - þú flýgur aldrei einn | 286 | 22,497 | 22,211 |
15 | Svanurinn | 7 | 4,300 | 4,293 |