Fréttablaðið um „Víti í Vestmannaeyjum“: Stöngin inn

„Stöngin inn,“ segir Benedikt Bóas Hinriksson í Fréttablaðinu um Víti í Vestmannaeyjum Braga Þórs Hinrikssonar og gefur myndinni fjórar stjörnur.

Úr umsögninni:

Það var þéttsetinn bekkurinn í bíó og börn og fullorðnir skemmtu sér vel. Það er ekki hægt að segja annað. Siggi Sigurjóns stelur nánast senunni af krökkunum enda er hann orðinn besti kvikmyndaleikari þjóðarinnar. Karakterinn hans Sigga fær ræðuna á sig um að það sé óhollt að reykja sem endar þannig að sígarettunni er hent og nikótínplástur tekinn upp. Stórkostlegt atriði sem er strax orðið klassískt.

Þá er Jóhann Jóhannsson stórkostlegur í hlutverki pabbans. Leikur ómennið alveg óaðfinnanlega. Tuðandi mamman á hliðarlínunni er einnig skemmtileg og Auðunn Blöndal sýnir fína takta sem þjálfari.

Höfundurinn sjálfur, Gunnar Helgason, lýsir leikjunum. Persónulega hefði ég vilja fá einhvern annan. Höddi Magg eða Gummi Ben, Einar Örn eða Tómas Þór hefðu sómt sér vel sem röddin. En trúlega fór lýsingin ekki í taugarnar á nokkrum öðrum manni. Þá lét Gunnar að sjálfsögðu Þrótt vinna mótið. Það var fyrirsjáanlegt. En ég meina, ef ég væri að skrifa bíómynd þá myndi ég láta Val vinna.

Myndin tikkar trúlega í öll rétttrúnaðarbox sem til eru. Fálkarnir, aðalliðið, er skipað einum innflytjanda, einum þéttum, einum með gleraugu og hæglátri hetju. Þá er stelpa í Fylki einn besti leikmaðurinn í myndinni og sýnir oft góð tilþrif. Verst fyrir hana að mega ekki spila landsleikinn á mótinu en það er bannað – eins og frægt er orðið.

Þetta er mynd sem er ekki gerð fyrir fullorðna, hún er gerð fyrir börn og ber að taka henni þannig. Og sem barnamynd er hún geggjuð. Börnin mín gengu allavega kát og glöð út og það gerði ég líka. Þar með er markmiðinu náð. Þetta er alveg stöngin inn.

Sjá nánar hér: Fréttablaðið – Stöngin inn úr vítinu í Vestmannaeyjum

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR