Svanurinn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hlaut um helgina sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara í Kaliforníu.
Þetta eru þriðju alþjóðlegu verðlaun myndarinnar. Myndin er tilnefnd til níu Edduverðlauna, meðal annars fyrir bestu mynd, handrit, leikstjórn og leikkonu í aðalhlutverki.