Svanurinn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hefur nú fengið tæplega tvö þúsund gesti eftir aðra sýningarhelgi.
Myndina sáu 653 í vikunni, en alls eru gestir 1,973. Myndin er í 13. sæti aðsóknarlistans.
Undir trénu er í 17. sæti eftir 19. sýningarhelgi. Alls hafa 42,588 séð myndina.
Aðsókn á íslenskar myndir 8.-14 jan. 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
2 | Svanurinn | 653 | 1,973 | 1,320 |
19 | Undir trénu | 33 | 42,588 | 42,555 |