„Hjartasteinn“ vinnur EUFA verðlaunin 

Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini. (Mynd: Ingibjörg Torfadóttir)

Tilkynnt var í dag að Hjartasteinn, hin margverðlaunaða kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, myndi hljóta EUFA verðlaunin, European University Film Award. Myndin hefur unnið til sex verðlauna á undanförnum vikum, en þessi sjöundu eru jafnframt 45. alþjóðlegu verðlaun myndarinnar. Engin íslensk bíómynd hefur hlotið jafn mörg verðlaun.

Sagt er frá þessu á vef Kvikmyndamiðstöðvar:

EUFA verðlaunin eru á vegum Evrópsku Kvikmyndaakademíunnar, Kvikmyndahátíðarinnar í Hamborg og Kvikmyndaverðlauna Quebec Háskóla, í samstarfi við Evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Verðlaunin verða afhent í Berlín þann 8. desember næstkomandi, þar sem Guðmundur Arnar leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar verður viðstaddur verðlaunaafhendinguna.

Af þeim 66 kvikmyndum sem voru í forvali fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru fimm þeirra tilnefndar til EUFA verðlaunanna í ár. Þeirra á meðal eru finnska kvikmyndin The Other Side of Hope eftir Aki Kaurismäki og rússneska kvikmyndin Loveless eftir Andrei Zvyagintsev – sem eru báðar tilnefndar í nokkrum flokkum fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin, þar á meðal fyrir bestu kvikmynd og besta leikstjóra.

Myndirnar fimm voru sýndar og ræddar í 20 háskólum í 20 Evrópulöndum og í kjölfarið komst hver skóli að niðurstöðu um hver væri besta myndin að þeirra mati.

Þetta er annað árið sem EUFA verðlaunin fara fram. Í fyrra vann hin margverðlaunaða kvikmynd Ken Loach, I, Daniel Blake, til verðlaunanna.

45 alþjóðleg verðlaun

Nýverið vann Hjartasteinn til sex alþjóðlegra verðlauna. Myndin var valin besta LGBT kvikmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cape Town í Suður Afríku, vann áhorfendaverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Ljubljana í Slóveníu, vann dómnefndarverðlaun á Chéries-Chéris kvikmyndahátíðinni í Frakklandi og var valin besta myndin á Cinedays – hátíð evrópskra kvikmynda í Skopje í Makedóníu. Auk þess vann hún áhorfendaverðlaun og dómnefndarverðlaun ungmenna á Du grain à démoudre kvikmyndahátíðinni í Frakklandi.

Myndin hefur því unnið til alls 45 alþjóðlegra verðlauna, auk þess að vinna til níu Edduverðlauna í febrúar síðastliðnum.

Sjá nánar hér: Hjartasteinn vinnur EUFA verðlaunin – hefur unnið til 45 alþjóðlegra verðlauna | Fréttir | Kvikmyndamiðstöð Íslands

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR