„Andið eðlilega“ í aðalkeppni Sundance

Kristín Þóra Haraldsdóttir og Patrik Nökkvi Pétursson í Andið eðlilega.

Andið eðlilega í leikstjórn Ísoldar Uggadóttur hefur verið valin til þátttöku í aðalkeppni Sundance kvikmyndahátíðarinnar í janúar.

Ísold Uggadóttir er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Með aðalhlutverk fara leikkonurnar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo.

Andið eðlilega fléttar saman sögum tveggja ólíkra kvenna, hælisleitanda frá Gíneu-Bissá og ungrar íslenskrar konu sem hefur störf við vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli. Leiðir þeirra liggja saman á örlagastundu í lífi beggja og tengjast þær óvæntum böndum.

Andið eðlilega er fyrsta kvikmynd Ísoldar í fullri lengd. Áður hefur hún leikstýrt stuttmyndunum Góðir gestirNjálsgataClean og Útrás Reykjavík, sem allar voru valdar til sýninga á kvikmyndahátíðum víða um heim og hlutu fjölda viðurkenninga. Ísold lauk meistaranámi í leikstjórn og handritagerð frá Columbia háskóla í New York vorið 2011.

Sundance kvikmyndahátíðin hefst 18. janúar nk. Andið eðlilega keppir í öðrum af tveimur flokkum aðalkeppninnar, World Cinema Dramatic Competition, þar sem 12 kvikmyndir framleiddar utan Bandaríkjanna voru valdar úr þúsundum innsendra mynda. Hátíðin var stofnuð af leikaranum og leikstjóranum Robert Redford og telst ein virtasta kvikmyndahátíð Norður-Ameríku. Á meðal leikstjóra sem hófu frægðargöngu sína á Sundance eru Paul Thomas Anderson, Jim Jarmusch, Steven Soderbergh, Wes Anderson, Darren Aronofsky, Quentin Tarantino og Coen bræður.

Skúli Fr. Malmquist framleiðir myndina fyrir hönd Zik Zak kvikmynda, en meðframleiðendur eru þær Inga Lind Karlsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir og Birna Anna Björnsdóttir, auk meðframleiðenda frá Belgíu og Svíþjóð.

Andið eðlilega verður frumsýnd á Íslandi í febrúar 2018 og mun Sena dreifa myndinni. The Match Factory sér um sölu og dreifingu á heimsvísu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR