[Stikla, plakat] „Sumarbörn“ eftir Guðrúnu Ragnarsdóttur

Sumarbörn eftir Guðrúnu Ragnarsdóttur verður frumsýnd þann 13. október næstkomandi. Stikla myndarinnar hefur verið opinberuð.

Systkinin Eydís og Kári eru send á barnaheimilið Silungapoll vegna heimiliserfiðleika og fátæktar. Börnin trúa því statt og stöðugt að dvölin verði stutt, en biðin veldur þeim síendurteknum vonbrigðum. Dagarnir líða, en Eydís með sinn sterka lífsvilja og lífsgleði yfirstígur hverja hindrunina eftir aðra með ráðsnilld og dugnaði og umhyggju fyrir Kára bróður sínum.

Guðrún skrifar einnig handrit, en með aðalhlutverk fara Kristjana Thors, Stefán Örn Eggertsson og Brynhildur Guðjónsdóttir.
Anna María Karlsdóttir og Hrönn Kristinsdóttir framleiða fyrir Ljósband.

Myndin hefur verið lengi á leiðinni, en tökur fóru fram sumarið 2013. Sýningar fara fram í Bíó Paradís en Sena dreifir. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk bíómynd er frumsýnd í Bíó Paradís.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR