Stuttmyndin „Búi“ fær þýsk verðlaun

Stuttmyndin Búi eftir Ingu Lísu Middleton var valin besta stuttmyndin á Schlingel barna- og unglingamyndahátíðinni í Chemnitz í Þýskalandi. Þetta eru fyrstu verðlaunin sem myndin hlýtur.

Inga Lísa Middleton (Ævintýri á okkar tímum) leikstýrir og skrifar handritið að Búa. Myndin er framleidd  af Skúla Fr. Malmquist fyrir Zik Zak kvikmyndir og skartar þeim Önju Sæberg, Hönnu Maríu Karlsdóttur, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur og Bjarna Kristbjörnssyni í aðalhlutverkum.

Búi fjallar um Önnu, níu ára stelpu sem flytur í nýtt hverfi og er utangátta þar. Hún kynnist Búa sem hvetur hana til að drýgja hetjudáð til að sýna krökkunum í hverfinu hvað í henni býr. Fljótlega kemur þó í ljós að Búi er ekki allur þar sem hann er séður.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR