Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar og Sundáhrifin eftir Sólveigu Anspach voru báðar verðlaunaðar á Transilvania International Film Festival sem fór fram í Cluj-Napoca í Rúmeníu um helgina.
Guðmundur Arnar hlaut verðlaun fyrir leikstjórn sína auk þess sem myndin hlaut áhorfendaverðlaun hátíðarinnar.
Hjartasteinn hefur nú hlotið alls 33 alþjóðleg verðlaun.
Kvikmynd Sólveigar Anspach, Sundáhrifin, hlaut The Young Francophone Jury Prize á TIFF. Um er að ræða verðlaun sem eru veitt af TV5 Monde, RFI Romania og The French Institute.
Sjá nánar hér: Hjartasteinn og Sundáhrifin unnu til verðlauna á TIFF | Fréttir | Kvikmyndamiðstöð Íslands