Stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, Ártún, hlaut fern verðlaun á Third Culture Film Festival í Hong Kong sem fram fór á dögunum. Verðlaunin voru veitt fyrir bestu myndina, besta leikstjóra, bestu myndatöku (Sturla Brandth Grøvlen) og besta leikara (Flóki Haraldsson).
Ártún er frá árinu 2014 og hefur hlotið alls 20 alþjóðleg verðlaun.