Kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum verður tekin upp í Vestmannaeyjum nú í sumar. Áheyrnarprufur verða haldnar í Reykjavík 1. apríl í Langholtsskóla. Leitað er að strákum og stelpum á aldrinum 9 – 11 ára til að leika og koma fram í myndinni.
Víti í Vestmannaeyjum er fjölskyldumynd með vísun í sannsögulega atburði. Myndin er byggð á fyrstu bókinni í vinsælum barnabókaflokki Gunnars Helgasonar. Bragi Þór Hinriksson, sem leikstýrði Sveppamyndunum, mun leikstýra og Sagafilm framleiðir. Hermann Hreiðarsson og Margrét Lára Viðarsdóttir leika sjálfa sig í myndinni.
Hér er hægt að nálgast skráningarsíðuna.