Aðsókn | Um þrettán þúsund á „Hjartastein“ eftir þriðju helgi

Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini. (Mynd: Ingibjörg Torfadóttir)

Aðsókn á Hjartastein Guðmundar Arnars Guðmundssonar heldur áfram að vera góð en myndin hefur nú fengið tæpa þrettán þúsund gesti eftir þriðju sýningarhelgi.

1,454 gestir sáu myndina um helgina, en alls 3,419 í vikunni. Heildartala gesta er nú 12,878. Myndin er áfram í öðru sæti á lista FRÍSK.

Eiðurinn er nú á 21. sýningarviku, en alls hafa 47,470 gestir séð myndina.

Aðsókn á íslenskar myndir 23.-29. janúar 2017

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
3Hjartasteinn3,41912,8789,459
21Eiðurinn3547,47047,435
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR