Hrafnhildur Gunnarsdóttir hlýtur heiðursverðlaun WIFT

Hrafnhildur Gunnarsdóttir.

Hrafnhildur Gunnarsdóttir, leikstjóri og framleiðandi, hlýtur heiðursverðlaun WIFT, Samtaka kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum. Verðlaunin eru nú veitt í fyrsta sinn í tilefni af tíu ára afmæli WIFT á Íslandi en samtökin munu einnig veita hvatningarverðlaun sem verða veitt fyrir lok þessa árs.

Þetta kemur fram á vef WIFT á Íslandi, en þar segir ennfremur:

Hrafnhildur er formaður Félags kvikmyndagerðarmanna og hefur beitt sér í þágu kvikmyndagerðarfólks um margra ára bil. Hún hefur setið í stjórn kvikmyndaráðs frá 2013 og barðist meðal annars fyrir hinu mikilvæga ákvæði í nýju kvikmyndasamkomulagi um að jafna beri hlut kvenna og karla í úthlutunum úr Kvikmyndasjóði. Hún hefur einnig setið í stjórn Nordisk Panorama frá 2010 og verið formaður stjórnar þar síðustu þrjú ár.

Þá er Hrafnhildur farsæll leikstjóri og framleiðandi sjónvarpsþátta og heimildarmynda til fjölda ára. Meðal hennar helstu verka eru Corpus Camera, Hver hengir upp þvottinn, Lifandi í limbó, Stelpurnar okkar, Óbeisluð fegurð, Með hangandi hendi, Hrein og bein, Öldin hennar og Hvað er svona merkilegt við það. Síðastnefnda myndin hlautu áhorfendaverðlaun heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborg 2015. Hvað er svona merkilegt við það hlaut einnig Edduverðlaunin í flokki heimildarmynda 2015 og menningarverðlaun DV sama ár.

Hrafnhildur hefur í verkum sínum fjallað um mannréttindamál, jafnréttismál og baráttumál hinsegin fólks. WIFT þakkar henni fyrir sitt framlag til þessa mikilægu mála á ferli sínum, ásamt því að hvetja hana áfram á sömu braut.

Sjá nánar hér: Hrabba hlýtur heiðursverðlaun – wift

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR