Eiðurinn Baltasars Kormáks er nú í fjórða sæti aðsóknarlistans og komin með yfir 32 þúsund gesti eftir fjórðu sýningarhelgi.
1,817 manns sáu myndina um helgina en alls 5,773 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 32,266 séð Eiðinn síðan hún var frumsýnd þann 9. september s.l.
Aðsókn á íslenskar myndir 26. september til 2. október 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
4 | Eiðurinn | 5,773 | 32,266 |