Sjö íslenskar heimildarmyndir verða sýndar á Poltava Film Festival sem fram fer dagana 26. til 29. maí n.k. í Úkraínu. Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður er einn aðstandenda hátíðarinnar.
Myndirnar eru:
- Ég vil vera skrýtin eftir Brynju Dögg Friðriksdóttur.
- Aska eftir Herbert Sveinbjörnsson.
- Þeir sem þora eftir Ólaf Rögnvaldsson og Kolfinnu Baldvinsdóttur.
- Sjóndeildarhringur eftir Berg Bernburg og Friðrik Þór Friðriksson.
- Andlit norðursins eftir Magnús Viðar Sigurðsson.
- Veðrabrigði eftir Ásdísi Thoroddsen.
- Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason.
Stjórnendur hátíðarinnar, Einar Þór Gunnlaugsson og Oleg Mingalev, segja hátíðina ekki síst haldna til að styrkja bönd milli Íslands og Úkraínu á menningarsviðinu.
Samskipti þessara tveggja Evrópulanda eru ekki mikil og afar lítið um menningarhátíðir eða aðra viðburði sem styrkja tengslin, Safn þeirra íslensku mynda sem sýndar verða einkennist af tilvísun í náttúru, vatn og sögu. Það er von aðstandenda að áhorfendur í Poltava kynnist Íslandi og norrænum slóðum frá fleiri en einu sjónarhorni og á hvaða róli Ísland er. Íslenskar heimildarmyndir pg list hafa ekki áður fengið viðlíka kynningu í landinu.
Poltava er um 300.000 manna borg, staðsett á milli höfuðborgarinnar Kiev og Donetsk, héraðsins þar sem nú er háð stríð við málaliða Rússa. Í landinu verður vart við stríðsátökin á hverjum degi með einum eða öðrum hætti, hvort sem það er beinn fréttaflutningur, hækkun mánaðarlegra reikninga eða fráfall fjölskyldumeðlims. Óhætt er að segja að stríðsþreytu gæti á svæðinu þótt menningarlíf sé í blóma og heimamenn reyni að sinna daglegu amstri í skjóli átaka.