Áhorf á Ófærð hefur verið í kringum 60% að meðaltali sem gerir þáttaröðina að einu vinsælasta sjónvarpsefninu síðan rafrænar mælingar hófust. Nú eru þrír þættir eftir.
Samkvæmt tölum sem RÚV hefur sent frá sér eru um 86% þeirra sem eru að horfa á sjónvarp meðan á útsendingu þáttanna stendur að horfa á Ófærð. Þá hafa verið fluttar fréttir af samdrætti í vatnsnotkun meðan á sýningu þáttanna stendur.
Þættirnir hefja göngu sína í Frakklandi í kvöld (France 2) og í Bretlandi þann 13. febrúar (BBC 4).