Tökur á annarri umferð þáttaraðarinnar Fortitude hefjast á Reyðarfirði 2. febrúar. Pegasus þjónustar verkefnið hér á landi.
Fjallað er um málið á vef Fjarðabyggðar:
Undirbúningur fyrir tökur hefur gengið að óskum og hefur Reyðarfjörður óðum verið að taka á sig mynd norska bæjarins Fortitude. Eins og glöggir hafa eflaust tekið eftir hefur liður í þeim undirbúningi verið að taka nður merkingar af byggingum og koma nýjum fyrir þar sem það á við.
Þessi fyrri tökulota sem hefst næstkomandi þriðjudag stendur út febrúarmánuð.
Sjá nánar hér: TÖKUR AÐ HEFJAST Á FORTITUDE