Greining | „Hrútar“ í um átta þúsund gesti eftir aðra sýningarhelgi

1218291_Rams

Hrútar halda góðum dampi í miðasölunni og nálgast nú átta þúsund gesti eftir aðra sýningarhelgi.

1.522 sáu myndina um helgina en alls 4.749 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 7.992 manns. Myndin er í þriðja sæti aðsóknarlistans eftir aðra sýningarhelgi en var í fyrsta sæti fyrir viku.

Bakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, sígur úr sjöunda sæti í það áttunda eftir fimmtu sýningarhelgi, en 530 manns sáu hana í vikunni sem leið. Helgaraðsóknin nam 214 manns en heildaraðsókn er komin í 6.863 manns.

Fúsi Dags Kára er komin í 11.247 manns í heildaraðsókn. Hún færist upp um eitt sæti milli helga og er nú í 11. sæti eftir 11 sýningarhelgar. 100 sáu hana um helgina en alls 220 í vikunni.

Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 1.-7. júní 2015:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
2Hrútar4.7497.992
5Bakk530 6.863
11Fúsi22011.247
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR