Mun hærra hlutfall kvenna en karla fær styrki úr Kvikmyndasjóði undanfarin ár

kmí-logo-með-myndÍ kjölfar umræðna um hlut kvenna í kvikmyndagerð á Íslandi hefur Kvikmyndamiðstöð Íslands tekið saman upplýsingar fyrir árin 2013 og 2014 um fjölda umsókna í Kvikmyndasjóð Íslands og styrkja/vilyrða úr sjóðnum eftir kyni. Í ljós kemur að hlutfall kvenna sem fá styrki er mun hærra en karla. Karlar fá þó fleiri styrki í heild, en karlkyns umsækjendur eru mun fleiri.

Í flokkun umsókna eftir kyni var stuðst við kyn handritshöfunda og leikstjóra.

Taflan sýnir fjölda umsókna og veittra styrkja bæði fyrir handrits- og framleiðslustyrki, skipt upp eftir kynjum, ásamt úthlutunarhlutfalli. Um er að ræða handrits- og framleiðslustyrki fyrir allar tegundir mynda, þ.e. leiknar kvikmyndir í fullri lengd, leikið sjónvarpsefni, heimildamyndir og stuttmyndir.

Árangur í umsóknum síðustu 2 ár eftir kyni
Umsóknir Úthlutanir Úthlutunar%
Handritsstyrkir 2013 og 2014 – handritshöfundar
KK 151 88 58%
KvK 57 37 65%
Teymi KK og KvK 17 13 76%
225 138 61%
Framleiðslustyrkir og vilyrði afgreidd 2013 og 2014 – leikstjórar
KK 98 56 57%
KvK 24 18 75%
Teymi KK og KvK 5 5 100%
127 79 62%
Samtals KK 249 144 58%
Samtals KvK 81 55 68%
Samtals teymi KK og KvK 22 18 82%

Taflan sýnir að í tilviki handritsstyrkja eiga karlar 151 umsókn og fá styrk í 58% tilvika. Sambærilegar tölur fyrir konur eru 57 umsóknir og árangur í 65% tilvika.

Í tilviki framleiðslustyrkja eiga karlar 98 umsóknir og fá styrk í 57% tilvika. Konur eiga 24 umsóknir, fá úthlutað í 18 tilvikum sem þýðir 75% úthlutunarhlutfall.

Í heildina ná konur 68% úthlutunarhlutfalli en karlar 58%.

Karlar eiga 249 umsóknir eða 71%, en fá um 66% veittra styrkja. Sambærilegar tölur fyrir konur eru að þær eiga 23% umsókna en fá 25% úthlutana.

Tekið er fram að þróunarstyrkir eru ekki taldir með í þessari samantekt. Ástæðan er sú að í tilfelli þróunarstyrkja er yfirleitt um sömu verkefni að ræða og í umsóknum um framleiðslustyrki. Umsóknir um þróunarstyrki voru 18 á tímabilinu og ættu ekki að skekkja þær niðurstöður sem taflan sýnir.

Sjá hér: Kvikmyndasjóður – Umsóknir og úthlutanir eftir kyni fyrir árin 2013 og 2014 | FRÉTTIR | Kvikmyndamiðstöð Íslands

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR